23.10.2011 | 12:12
Stóra systir og skotleyfi Vinnumálastofnunnar
Gefið hefur verið skotleyfi á þann sem þiggur atvinnuleysisbætur og viðhefur svokölluð bótasvik inn á síðu Vinnumálastofnunnar. Þar er tengill sem á stendur Bótasvik. Sendu ábendingu um bótasvik. Þegar smellt er á hnappinn, birtist síða með eftirfarandi texta: Ábendingar um meint bótasvik úr atvinnuleysistryggingakerfinu er hægt að senda á Vinnumálastofnun með því að fylla út formið hér að neðan. Það er beðið um nafn þess sem lætur vita og hugsanlega liggur réttlætið gagnvart þessari aðgerð í að hún er send undir nafni. Ég yrði þakklát ef lögfróðir menn gætu upplýst okkur hin; hvar munurinn gagnvart lögunum liggur, þ.e. í aðgerðum Stóru systur og Vinnumálastofnunnar. Ég fagna umræðunni sem aðgerðir Stóru systur hafa vakið þó ég dragi í efa slíkar aðgerðir almennings. Það er samt staðreynd að það þarf beitt verkfæri til að stinga á kýli.
9.10.2011 | 09:00
Réttlæti eineltis
Sá sem leggur í einelti réttlætir gjarnan eineltið með því að gefa það út að sá sem lagður er í einelti hafi gefið færi á sér. Ég er tryggur áhorfandi þátta Egils sem ég tel hafa fært okkur ríkari sýn á þjóðmálin. Þessi aðför að málfari ákveðins þingmanns færir okkur ekkert annað en stundarskömm fyrir einn og stundargaman fyrir annan. Ég óttast að aðförin kalli almenna skömm yfir Egil.